Brimnes RE skilaði mestu aflaverðmæti togara á botnfiskveiðum.(Mynd: Alfons Finnsson)[/caption]
Frystitogarinn Brimnes RE skilaði mestu aflaverðmæti botnfisktogara á árinu 2009 eða 1.735 milljónum króna (fob). Sólbakur EA var eini ísfisktogarinn sem komst yfir milljarðinn en aflaverðmæti hans nam tæpum 1,1 milljarði. Bæði þessi skip eru í eigu Brims hf.
Alls komust 28 íslensk fiskiskip yfir einn milljarð króna í aflaverðmæti á árinu 2009 og hafa þau aldrei áður verið svo mörg. Þrjú skip veiddu fyrir meira en tvo milljarða hvert eins og fram kemur í annarri frétt hér á vefnum. Voru það allt vinnsluskip á uppsjávarveiðum.
Alls fiskaði togaraflotinn fyrir 46 milljarða króna og uppsjávarflotinn fyrir 22 milljarða.
Þetta kemur fram í samantekt Fiskifrétta sem byggð er á tölum Hagstofunnar. Nánar í Fiskifréttum.