Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 68 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 54 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um rúma 13 milljarða eða 24,7% á milli ára.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok júní orðið 50,6 milljarðar og jókst um 25,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 40,3 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 24,6 milljarðar og jókst um 28,7% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 8,6 milljörðum og jókst um 6,3%, en verðmæti karfaaflans nam um 6,2 milljörðum, sem er 21,8% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 25,1% milli ára og nam rúmum 3,4 milljörðum fyrri hluta ársins 2010.
Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 5,4 milljörðum króna í janúar til júní 2010, sem er 5,9% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 33,2% milli ára og nam rúmum 10,5 milljörðum.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 28,3 milljörðum króna og jókst um 32,5% frá árinu 2009. Aflaverðmæti sjófrystingar voru rúmir 22 milljarðar, sem er 33,2% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 43,4% milli ára og var um 11 milljarðar, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.