Nú hefur verið tekin sú ákvörðun að fara í áhafnarferð í apríl og mai næstkomandi. Farið verður til Tenerife í vikuferð og mun verða farið í tveimur hópum. Annar hópurinn fer í byrjun apríl en hinn hópurinn í lok mai. Er mikil tilhlökkun í áhafnarmeðlimum, því síðast var farið í áhafnarferð árið 2009.
Að sjálfsögðu mun blm Júllans verða með í för og munda myndavélina og pennann eftir því sem hlutirnir gerast…