9. December 2010
  • Homepage
  • >
  • Fréttir
  • >
  • BB.is – Frétt – Besta grásleppuvertíðin í tvo áratugi

BB.is – Frétt – Besta grásleppuvertíðin í tvo áratugi

  • by fg
  • 14 Years ago
  • 0

ljósm: turi.is

Næst mestu var landað á Brjánslæk á grásleppuvertíðinni í ár eða 1.481 tunnu. Mestu var landað í Stykkishólmi eða 2.736 tunnum og í þriðja sæti er Akranes með 1.347 tunnur. Heildarafli á grásleppuvertíðinni 2010 svaraði til 17.947 tunna af söltuðum hrognum. Fara þarf aftur til ársins 1987 til að finna viðlíka veiði að því er fram kemur á vef Landssambands smábátaeigenda. Afkoma flestra sem stunduðu veiðarnar var góð, hátt verð á hrognunum og meðalveiði á bát 52 tunnur sem er rúmum fjórðungi meira en á síðustu vertíð.

Alls stunduðu 344 bátar veiðarnar á vertíðinni sem var 65 bátum fleira en 2009 og 115 fleiri en á vertíðinni 2008. Langmest veiði var í Breiðafirði 5.480 tunnur eða 30% heildarveiðinnar.

  • facebook
  • googleplus
  • twitter
  • linkedin
  • linkedin
Previous «
Next »

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *