Júlíus Geirmundsson ÍS liggur nú við landfestar í Ísafjarðarhöfn vegna brælu, en eins og landsmenn vita er veður afar slæmt á miðunum núna…. Skipið lá í vari undir Grænuhlíð til að byrja með en hviðurnar þar slógu uppí 40 metra á sekúndu.Brottför er óákveðin, en beðið er eftir að veðrinu sloti….