Slökkvilið Akureyrar var kallað út kl: 04:30 í nótt þar sem neyðarlínu barst tilkynning frá Oddeyrinni EA um eld í vélarrúmi skipsins. Skipið átti skammt eftir að bryggju á Akureyri þegar tilkynningin barst og lagðist skömmu síðar að Krossanesbryggjunni.
Á vef slökkviliðs Akureyrar kemur fram að tveir reykkafarar hafi farið um borð og niður í vélarrúm.
„Vélstjórar skipsins höfðu þá þegar uppgötvað orsök reyksins sem kom frá rafal skipsins og slökktu á honum. Ljósavél skipsins var því sett í gang og blásarar keyrðir til að reykræsta rýmið. Vakthafandi vakt á tveimur dælubílum var kölluð til ásamt bakvakt yfirmanna. Vinna á vettvangi gekk vel fyrir sig og lauk slökkviliðið störfum um kl: 5:00,“ segir á vef slökkviliðsins.
Oddeyrin kom til Samherja í febrúar 2007. Hún er ætluð til botnfiskveiða en getur einnig stundað flotvörpuveiðar. Hún getur dregið tvö troll í einu. Aðstaða er til heilfrystingar um borð