Á árinu sem leið var þeim merka áfanga náð í annað sinn í sögunni að ekkert banaslys varð meðal íslenskra sjómanna. Síðast gerðist það árið 2008.
Í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu segir að ljóst sé að öryggi íslenskra sjómanna hafi aukist til mikilla muna sem og öryggisvitund þeirra, sem hefur tekið miklum stakkaskiptum á síðustu áratugum.
„Má með sanni segja að starf Slysavarnaskóla sjómanna í fræðslu til sjómanna um öryggismál hafi þar en og aftur sannað mikilvægi sitt,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir að öllum sjómönnum sé skylt að sækja öryggisfræðslu eigi sjaldnar en á fimm ára fresti og sé árangurinn vel sýnilegur á þessum tímamótum. Metþátttaka hafi verið á námskeiðum við Slysavarnaskóla sjómanna en þá sóttu 3.112 manns námskeið við skólann en fyrra met var 2.300. „Má rekja þessa aukningu til gildistöku öryggisfræðsluskyldu til handa sjómönnum á smábátum,“ segir í tilkynningunni.