Gamla varðskipið Þór hefur losnað frá bryggju í Gufunesi og strandað í fjörunni. Skv. upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu er verið að skoða næstu skref, þ.e. hvort draga eigi skipið aftur á flot eða láta það liggja þar til veðrinu slotar.
Verður sú ákvörðun tekin í samráði við eigendur skipsins.
Að sögn Landsbjargar hafa björgunarsveitir sinnt mörgum útköllum vegna veðurs víða um land.