Þar sem ritstjóri Júllans er ekki um borð þessa veiðiferð, er lítið um fréttir af hafinu. Júlíus Geirmundsson ÍS er núna á grálúðuveiðum, og er þar af leiðandi ekki í síma eða netsambandi. Um borð í skipinu er svokallað 3g samband en það þýðir að skipið þarf að vera nálægt landi til að komast í samband. Grálúðumiðin eru hinsvegar flest langt úti og djúpt þannig að ekkert samband er þar. Þess má geta að stóran hluta veiðiársins er Júlíus á grálúðuveiðum.
Ef einhverjir luma á fréttum eru þær vel þegnar…. jullinn@jullinn.is