10. October 2010

Skora á ráðherra að auka þorskkvótann

  • by fg
  • 14 Years ago
  • 0

Bæjarstjórn Grundarfjarðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í vikunni áskorun til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að auka við aflaheimildir í þorski þegar á þessu fiskveiðiári.

,,Staða margra sveitarfélaga og hafnarsjóða er slæm og með boðuðum niðurskurði á fjárlögum s.s. aukaframlagi í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og niðurfellingu á endurgreiðslu vegna tryggingagjalds, munu erfiðleikar þeirra aukast til muna. Aukin úthlutun á aflaheimildum er kjörin leið til að auka tekjur þeirra byggðarlaga sem byggja afkomu sína að miklu leyti á veiðum og vinnslu sjávarafla,” segir í ályktuninni.

Þá segir að hægt sé að auka aflaheimildir í mörgum tegundum án þess að gengið sé á fiskistofna til dæmis með breytingu á aflareglu. Bendir bæjarstjórn á að skiptar skoðanir eru um mælingar og ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar.

“En þó viljum við benda á að samkvæmt mati hennar setur veiði miðað við 25% aflareglu í stað 20% sem er í dag, ekki þorskstofninn í hættu heldur hægir eingöngu á uppbyggingu stofnsins. Breyting á aflareglu úr 20% í 25% hefði í för með sér að veiði á þorski myndi aukast um 40 þúsund tonn á árinu. Með slíkri breytingu á aflareglu er tekin skynsamleg ákvörðun í ljósi efnahagsástands og atvinnumála. Slík ráðstöfun hlýtur að vera réttlætanleg til að efla byggðir landsins og skjóta traustari fótum undir atvinnu ásamt því að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar,” segir í ályktuninni.

Vefurinn Skessuhorn greinir frá þessu.

  • facebook
  • googleplus
  • twitter
  • linkedin
  • linkedin
Previous «
Next »

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *