22. February 2012

Strákarnir á lóðaríi!

  • by fg
  • 13 Years ago
  • 1

Einn daginn er blaðamaður Júllans átti leið fram í stefni brá honum heldur í brún. Heyrði hann stunur miklar,  más og blástur, svo mikinn að honum varð ekki um sel. Varlega læddist blm nær, með blik í auga, spenntur yfir þessum hljóðum og átti von á… skiptir ekki máli. Þegar betur var að gáð þá voru  þeir Gummi og Jónsi að lyfta lóðum í “æfingasal” skipsins en fram í stafni eru þeir búnir að koma upp lítilli aðstöðu til vöðvastælingar.

Var blm boðinn velkominn á “The Gunshow” og smellti af nokkrum myndum sem fylgja hér með.

 

  • facebook
  • googleplus
  • twitter
  • linkedin
  • linkedin
Previous «
Next »

1 Comment Already

  1. hahahahaha flottir

Comments are Closed.