1. November 2012
  • Homepage
  • >
  • Slider
  • >
  • Styrkir til björgunarsveita og Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

Styrkir til björgunarsveita og Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

  • by fg
  • 12 Years ago
  • Comments Off

Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf. afhenti nokkrum aðilum í heimabyggð styrki. Þeir sem hlutu styrkina eru: Björgunarsveitin Tindar í Hnífsdal, Björgunarsveitin Ernir í Bolungarvík og Björgunarfélag Ísafjarðar, auk þess sem Björgunarfélagi Ísafjarðar var veittur sérstakur fjárstuðningur vegna sjálfboðavinnu félaga sveitarinnar í tengslum við þakskipti á fasteignum HG í Hnífsdal í sumar. Þá var Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði einnig afhent fullkomið sjúkrarúm með sérstakri loftdýnu til varnar legusárum og fjölnota hjólaborði.

„Það er okkur hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru mikill heiður að geta stutt við bakið á góðu starfi í heimabyggð. Það þarf ekkert að fjölyrða um mikilvægi björgunarsveitanna og heilbrigðisstofnunarinnar fyrir nærsamfélagið hér á Vestfjörðum. Því vildum við sýna hug okkar í verki”, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar.
Í tilefni dagsins var boðið til kaffiveitinga í kaffisal fyrirtækisins í Hnífsdal miðvikudagskvöldið 31. október.

Tekið af vef Hraðfrystihússins-Gunnvarar,  www.frosti.is

  • facebook
  • googleplus
  • twitter
  • linkedin
  • linkedin
Previous «
Next »